blettur til framfara fyrir gomlu og dýrið

6.22.2004

Stóri og litli kroppur

Föstudagur 18.06.04
Stóri kroppur og litli kroppur komust út úr bænum uppúr 10 og stefnan var tekin beint á nýja landið í Borgarfirðinum. Óendalega sæt lögga tók á móti okkur við Hvalfjarðargönginn og vísaði okkur frá vegna lokunna... stóri var frekar fúll yfir þessu en ég sætti mig alveg við að keyra eftir að móturhjólalöggan var búin að brosa til min ;). Trítluðum okkur uppí land og litum á gripinn! Útsynið er svo rosalega flott, gamla er svo ánægð yfir þessu og hlakkar svo til að eyða tíma hér!! Svo var stefnan bara tekin norður. Lentum á Ak um miðjan dag og tékkuðum okkur inn í pleisið, sem er bara fínt.
Að sjálfsögðu fórum við í nettó til að skilja eftir aura í heimabyggð, styrktum ríkið á staðnum og bókstaflega 20 kíló af klaka var keypt svo ekki yrði vöntum.
Þannig við vorum klár í allt. Eftir að hafa horft á boltann.. eða hann horfði á boltan og eg á læri og rassa og sæt andlit.. tókum við smá office senu. Þessir þættir eru rugl þeir eru svo fyndnir.
Föstudagar eru ekki mestu stuð dagarnir en við urðum að tékka á næturlífinu. Skelltum okkur í diskó gallann og trítluðum okkur af stað. Við verðum að viðurkenna að við vorum í eldri kanntinum og við vorum ekki að tapa okkur yfir karokí stemmunni né dúndur hljómsveitinni sem var að reyna að vera betri en Valtýr.. en það stoppaði okkur ekki í að tjútta feitt og skemmta okkur konunglega. Mér fannst heldur ekkert leiðilegt að skoða sætu litlu strákanna ;)

0 Comments:

Post a Comment

<< Home